Djýrari Tjýpan
24.02.2007 19:40:23 / drengz

I'll catch you on the flip side !!!

 

Vegna mikils þrýstings þá verð ég nú að henda inn einu bloggi hér!!

Samt skil ég ekki af hverju krakkar mínir, því það er ekki mikið að frétta af mér nema bara vinna og skóli!

en Vá ég er búin að vera svo þreyttur undafarna daga að það er ekki fyndið sko8|

Ég var svo duglegur í dag:o það byrjaði á því að ég vaknaði um 10 leitið í morgunn og brunaði uppá verkstæði til Beyson, þar beið pabbalingur og við byrjuðum á því að skipta um dempara að framan. næsta verk var að tjöruhreinsa bílinn og trúið mér það var kominn tími til sko8| bíllinn þrifinn hátt og lágt og að lokum var hann bónaður! og þrifinn að innan:P

Ég held svei mér þá að bíllinn hafi aldrei litið svona vel út:D ég ætlaði varla að tíma að keyra hann heim en ég þurfti nú að gera það! og allt þetta tók samtals 4 og 1/2 tíma pretty need eyy!!!

en hef þetta ekki lengra í bili geri annað bara e-n seinna:) en smá getraun hér!

Úr hvaða mynd er titillinn í þessu bloggi?? Koma svo fólk!!!

"And shepherds we shall be, for Thee, my Lord, for Thee. Power hath descended forth from Thy hand that our feet may swiftly carry out Thy command. So we shall flow a river forth unto Thee, and teeming with souls shall it ever be, In Nomine Patris, Et Filii, Et Spiritus Sancti."

ArNaR út

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 22:24:16 / drengz

The GIANT is woken!! Again:D

Sææælar ! ! !
Það eru bara 9 mán. or some frá seinasta bloggi, ruddalegt það ha:!:

But anywho, who are you.. nei segi svona, en...
Are you my brother from another mother eða my sister from another mister??

já þið megið búast við fleira svona rugli og sögum frá okkur frændunum!!

Það er nú svoleiðis að hann Davíð Arnar er að koma á AK um helgina og það verður DJAMM hjá okkur frændum!! það fyrsta í meira en mánuð8|

en látum þetta vera nóg í bili

The GIANT has spoken!! again:lol:

Salut, belisimo and last but not least ciao bello;)

ArnaR út

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 20:27:04 / drengz

skemmtilegt veður!!

Daginn Daginn

jæja hvað segiði var kominn tími á blogg?

eeen já eins og einhverjir vita þá átti ég afmæli síðasta laugardag, nokkuð góð helgi!

og svo í gær þá átti að vera leikur á Akranesi og ég fékk far hjá söndru,völu hrönn og þuríði á blönduós og færðin á þverárfjallinu var helvíti slæm sáum rétt svo stikurnar en þetta reddaðist:D, svo var lagt af stað frá blönduós, ákveðið var að liðið skildi fara saman í rútu, og þessi rúta var alveg vangefin eins og bílstjórinn, gaurinn var alveg blindur og örugglega fullur, var bara að dúlla sér á öfugum vegarhelmingi og og reyndi að taka niður allar stikurnar á leiðinni en svo var tekin sú ákvörðun að fresta leiknum og snúa við og svo komst ég ekki yfir á krókinn því allt ófært, fjallið og hin leiðin og þurfti ég að vera þarna yfir nóttina en ekki meira um þetta í bili

svo bara leikur á laugardaginn á móti Skallagrím:D

sæææælar

Davíð...


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 10:48:38 / drengz

I had a dog and his name was BINGO!!!

HDS sir and how are we this afternoon? Aaalllrighty then. I got a package for you!!

Líf mitt var að taka stórt stökk uppávið:D Ég var að fá bílinn minn í gær:!:kongabláan Golf8) ég á svo bestustu bestu systir í heimi að það er ekki fyndið:!: hún kom í gær þessi elska og kom mér á óvart, keyrði frá Reykjavík bara til að koma með bílinn til mín, sem var hennar í gær;)

Já annars er ekkert mikið að frétta nema að ég fór í frönsku munnlegt próf í gær,  segum ekki meira um það í bili8| ég er að koma á krókin um helgina, bæði útaf júróvisíón og afmæli frænda míns sem er hinn eigandinn af þessari síðu.. ætlum við reyndar að detta VEL í það:lol:

smá spurning hér í endan

úr hvaða mynd er fyrsta setningin í þessu bloggi??

Salom

Arnar


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 13:30:09 / drengz

Bonjour!!! c´est magnifique

Sæææælar

Jæja comment allez-vous?? í tilefni þess að ég á að vera í stærðfræðitíma en nenni ekki að vera í þá ætla ég að blogga pínu;)

Það er ekkert búið að ske sem hægt er að segja frá:( ekki nema að síðan ég fékk bílpróf hef ég ekki komið heim fyrir 06:00 um helgar8| er oftast í sirka 9 tíma, alltaf að rúnta marr8) skutla fólki út og suður...

jú það er eitt í viðbót! haldiði að pabbi gamli hafi bara ekki splæst í eitt stykki tvöfaldan Amerískan ískáp:D litla kvikindið sem áður var fyrir var eldri en ég8| og þá er það gamallt gott fólk:lol:

Síðan ætla ég að hvetja alla í að skella sér í Sjallann á Laugardagskvöldið því það er enginn annar en DJ Páll Óskar sem mun trylla lýðinn:!: kostar bara 500 kr. inn og opnar 24:00 held ég til 04:00.... Því miður mun ég öruglega ekki komast:$ (ég veit að það verður öruglega ekki jafn gaman vegna þess en reynið samt að skemmta ykkur krakkar mínir) verð ég öruglega staddur á Sauðárkrók með hinum eigandanum af þessari síðu:)

Salom

Arnar


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 11:59:03 / drengz

2 búin, 0 eftir:D

Sæææælar

Bara að láta ykkur vita að halda ykkur af götum Akureyrar í nokkra daga!! Kjellinn er kominn með bílpróf!!!:D og náði því meira að segja með 0 VILLUR;)

Tók bílprófið í gær, sleppti 2 fyrstu tímunum í skólanum til að fara í það8) Kom svo keyrandi í skólann, bara nettur á því...

er í frönskutíma og nennti ekki að fylgjast með... datt í hug að henda inn einu stuttu bloggi;)

Adios amigos

Arnar "the driver"8)


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 00:36:54 / drengz

17 ár!!!

Sæææælar

Hann á afmæli í dag hann á afmæli í dag hann á afmæli hann Arnar hann afmæli í dag.:D

Jæja núna er víst kominn 22.apríl og það er ekki frá sögu færandi nema það að Arnar Freyr, frændi og hinn eigandinn af síðunni er 17 ára í dag, og ætla ég að óska innilega til hamingju með afmælið:D een ekki var það meira í bili...

Salom

Davíð..


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 23:48:07 / drengz

Gleðilegt Sumar:D:D:D

Daaaginnn!!

Ákvað að smella einu hérna inn í tilefni dagsins, Gleðilegt Sumar allir!:lol:

en já lítið að gerast þessa dagana nema leikur á Sunnudaginn við Njarðvík í fífunni og hvet ég alla til að mæta þangað og svo eru það bara prófin eftir rúma viku....

Eeen kveð að sinni...

Lag dagsins: Nickelback - Savin´ me

Sæææælar

Davíð..


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 16:05:02 / drengz

Eitt búið, Eitt eftir:P

Sæææælar

Kjellinn var að koma úr skriflega bílprófinu og ætlar að segja ykkur aðeins frá því;)

Ég mætti upp í Frumherja 5 mín áður en prófið byrjaði. Þá var ég beðin um e-a bók til að kvitta í og ég bara8| Þá hafði kjellinn gleymt helv. bókinni heima og ég þurfti að bruna heim sækja kvekendið og kom þess vegna 5 mín og seint8) svalur á því sko.. en hvað með það, ég settist niður í eina sætið sem var laust og fann hvernig spennan kom yfir mig:S þarna sat ég sveittur af stressi í 25 mín áður en ég þorði að skila prófinu:!: hræddur um að ég myndi falla:( Prófdómarinn fór yfir og ég hélt að hann ætlaði að vera allan daginn að því, loksins lét hann mig fá prófið og sagði " mjög gott" og ég bara whoood8| Þá kom í ljós að ég var bara með 2 villur:!:

A hluti : 0        B hluti : 2

þannig að ég slapp lifandi frá þessum ósköpum:lol: en þá er bara verklega eftir og ef ég fell á því þá er ég með 8 lítra af mongólisma í mér punktur:!: Læt ykkur vita hvernig gekk í því þegar ég er búin með það;)

Lag dagsins: Snorri Snorrason - Allt sem ég á

Salom

Arnar;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 22:12:10 / drengz

hmm?

Sææælar

Jæja mér datt í hug að reyna að skrifa eitthvað, á Fimmtudaginn fórum við Arnar í bíó og var when a stranger calls fyrir valinu að þessu sinni, en þessi mynd er ekki uppá marga fiska finnst mér bara vægast sagt leiðinleg, en svo á Föstudaginn var leikur við Neista frá Hofsósi í Boganum á Akureyri og vannst sá leikur 5-0:) og svo eftir leik var brunað beint á krókinn og gert sig ready fyrir ball með Á Móti Sól í Miðgarði, þrælgott ball;)

Svo ætla ég að óska Njarðvíkingum til hamingju með Íslandsmeistara titilinn en þetta er sá titill sem Tindastóll mun vonandi vinna á næsta tímabili8):lol:

en lag dagsins er: Fall out boy - Dance Dance

Salom

Davíð...


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 05:46:39 / drengz

Heimsyfirráð í vændum!!!

Sææælar

Núna um 5 leytið að morgni mánudags þá fengum við frændurnir þá flugu í hausinn að hefja sameiginlega bloGGsíðu:lol: Við munum reyna okkar besta í að færa ykkur fréttir af ævintýrum okkar og öðru sem við munum "slysast" til að lenda í;)

Og kemur það fyrsta hér: ( þetta er svona "had to be there moment") 

Við Djýrari Tjýpurnar vorum í kvöld að labba áleiðis í skítakrapi og éljaskít til aumingja sem þurfti hjálp:!: Yngsta systir Dabba sem er 8 ára kom með okkur til að hitta Simba hunddrulluna:!: sem var næstum búin að naga hendina af honum Arnari8| EN á leiðinni ætlaði systir hans Dabba að stinga okkur af, hún var komin sirka 4 metra á undan okkur en þá8| tekur hún uppá því að detta á magann og renna á honum liggur við út alla götuna sem er þó nokkuð löng:D Við grenjuðu af hlátri því þetta minnti okkur bara á þegar fótboltamenn fagna mörkum, þegar þeir renna sér á maganum:haha:  en sem betur fer var allt í lagi með litla greyjið:)

Salom

Djýrari Tjýpurnar


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
9. febrúar 2012